Tónlistarmiðstöð starfar í þágu íslenskrar tónlistar og tónlistarfólks sem hefur skapað Íslandi sérstöðu á heimsmælikvarða. Helsta markmið miðstöðvarinnar er að efla íslenska tónlist bæði hér heima og erlendis.
Okkar hlutverk
vera samstarfsvettvangur hagsmunaaðila í málefnum tónlistar
hafa umsjón með rekstri og starfsemi Tónlistarsjóðs
stuðla að kynningu útbreiðslu og sölu á íslenskri tónlist og starfrækja nótnaveitu fyrir íslensk tónverk
veita tónlistarfólki og og fyrirtækjum á sviði tónlistar ráðgjöf og þjónustu
styðja við útflutning á tónlist og stuðla að tengslamyndun við erlenda aðila
sinna afmörkuðum verkefnum tengdum rannsóknum og tölfræði um íslenskan tónlistariðnað og styðja varðveislu menningararfleifðar á sviði tónlistar