
Hönnunarteymið Endurtakk hefur gefið gömlum Airwaves-varningi nýtt líf og fagnar nýju línunni með saumaskap og lifandi tónlist.. Tryggðu þér einstakan hátíðarvarning sem enginn annar á og styddu um leið íslenska hönnuði í baráttunni gegn textílsóun. Viðburðurinn er hluti af Langt mot Nord, samstarfsverkefni Tromsø World, Green Producers Club og Tónlistarmiðstöðvar.