Hátíðapotturinn 2026 - Opið kall

12 February 2026

Tónlistarmiðstöð í samstarfi við Íslandsstofu stendur reglulega fyrir komu blaðamanna til landsins í tengslum við Iceland Airwaves, Reykjavík Jazz og Myrka músíkdaga. Nú kallar miðstöðin eftir umsóknum um samstarf frá öðrum hátíðum og hvetjum við sérstaklega hátíðir utan höfuðborgarsvæðisins til að sækja um.

Hvað styður Hátíðapotturinn? 

Hátíðapotturinn er stuðningur fyrir íslenskar tónlistarhátíðir til þess að bjóða erlendum fjölmiðlum til landsins með það að markmiði að koma íslenskum tónlistarhátíðum og tónlist á framfæri og efla alþjóðleg tengsl. Auk blaðamanna geta hátíðir einnig sótt um fyrir þátttöku listrænna stjórnenda eða annarra lykilaðila ef það þjónar því markmiði að koma íslenskri tónlistarmenningu á framfæri.

Hátíðarstuðningurinn er eftirfarandi:

  • Aðstoð við alþjóðleg almannatengsl/kynningu í samstarfi við Íslandsstofu
  • Flugferðir gesta til og frá landi (í almennu farrými)
  • Gisting á meðan á hátíð stendur
  • Ferðir innanlands ef hátíð er utan höfuðborgarsvæðisins
  • Máltíðir eða sérstaka viðburði sem gestirnir taka þátt í
  • Utanumhald Tónlistarmiðstöðvar með komu gesta 

Lykilatriði sem horft er til við mat á umsóknum:

  • Að hátíðin sé með skýran fókus á íslenska tónlist
  • Að hátíðin hafi nú þegar sannað sig og sé rekin á faglegan hátt
  • Að hátíðin hafi skýrar áherslur
  • Að hátíðin sé með drög að kynningaráætlun, heimasíðu og/eða kynningarefni á ensku ásamt fjölmiðlapakka sem má deila. 
  • Að markmið með komu erlendra gesta sé vel skilgreint og samræmist áherslum hátíðapottsins.

Í valnefnd sitja fulltrúar frá Tónlistarmiðstöð og Íslandsstofu. Við val á umsóknum er fjölbreytni höfð að leiðarljósi. 

Hér má finna umsóknareyðublað og verður tekið við umsóknum til og með 1. mars 2026. 

Frekari upplýsingar veitir:

Árni Hjörvar Árnason
Markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar
arni@icelandmusic.is

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar