Meistaranámskeið í umboðsmennsku með Sumit Bothra

No items found.

Meistaranámskeið í umboðsmennsku með Sumit Bothra
Hvar: Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík
Hvenær: Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 14:00–15:30
////////////////////////////////////

Að venju býður Bransaveislan upp á Management Masterclass í samstarfi við MMF Iceland. Að þessu sinni höfum við fengið Sumit Bothra, stofnanda bresku umboðsskrifstofunnar SB3 Artist Management, til liðs við okkur.

Sumit Bothra býr yfir meira en 25 ára reynslu úr tónlistarbransanum. Áður en hann stofnaði SB3 starfaði hann í 15 ár hjá ATC Management, síðast sem framkvæmdastjóri, þar sem hann var umboðsmaður listafólks á borð við PJ Harvey, The Staves, Amaarae og Lola Young. Meðal skjólstæðinga SB3 í dag má nefna Katie Melua og Victoria Canal. Sumit situr jafnframt í stjórnum Music Managers Forum í Bretlandi og European Music Managers Alliance.

Sætaframboð er takmarkað.

‍
Skráning fer fram hér

‍

Dagsetningar
Dagsetning
4 November 2026
 –
Staðsetning
Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar