Út og suður: Útflutningur og tækifæri á tónlistarmarkaði í Mexíkó

🗓️ 3. júní
⏰ 17.00-19.00
💻 Fjarfundur

Vinnustofa á vegum Tónlistarmiðstöðvar

Mexíkó er einn sá tónlistarmarkaður í heiminum sem vex hvað örast í dag og tækifæri fyrir norræna tónlist fara sífellt vaxandi þar í landi. Á liðnum haustmánuðum stóð Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við útflutningsskrifstofur Færeyja og Noregs, fyrir yfirgripsmiklum leiðangri til Mexíkó. Einn listamaður var valinn frá hverju landi og komu þau fram á þrennum hljómleikum á hinum goðsagnakennda tónleikastað Foro Indie Rocks í Mexíkóborg. Höfuðáhersla var lögð á að tengja hópinn við helstu fagaðila á svæðinu til að leggja grunninn að langtímasamböndum

Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir hvernig byggja megi upp tengslanet, skipuleggja tónleikahald og stýra stefnumótun í rómönsku-Ameríku. Samstarfsaðilar og þátttakendur úr Mexíkóverkefninu deila reynslu sinni, dæmum úr raunveruleikanum og þeim helstu lærdómum sem bransafólk þarf að hafa í huga.

  • Fyrir hverja: Listafólk, umboðsfólk og tónlistarbransafólk sem vill kynna sér tækifæri í Mexíkó og rómönsku-Ameríku.
  • Tungumál: Námskeiðið fer fram á ensku.
  • Fyrirkomulag: Rafrænt (Zoom hlekkur verður sendur degi fyrir viðburðinn).

Viðmælendur

  • Margrét Ólafsdóttir – Yfirmaður stafrænnar útgáfu hjá One Little Independent Records (OLI). 
  • Augustin (Gus) Eude – Verkefnastjóri hjá One Little Independent Records (OLI). 
  • Soffía Kristín Jónsdóttir – Umboðsmaður og stofnandi Iceland Sync. Soffía tók þátt í Mexíkóverkefninu sem verkefnastjóri og manager Ásgeirs.
  • Malfi Dorantes & Valeria Ramos – Stofnendur MalfiCo (Mexíkó). MalfiCo er kynningarstofa sem hafði yfirumsjón með almannatengslum, tónleikakynningum, skipulagi og tengslamyndun á svæðinu.

Stjórnandi

  • Leifur Björnsson – Sérfræðingur á sviði útflutnings hjá Tónlistarmiðstöð. 

Skráning fer fram hér

Dagsetningar
Dagsetning
3 June 2026
 –
Staðsetning
Vefsíða
Aðrir viðburðir
Allir viðburðir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar