Bandsplain og Bedroom Community bætast við dagskrá IA ráðstefnunnar

13 August 2026

Hið margrómaða Ringer hlaðvarp Bandsplain og brautryðjendurnir hjá Bedroom Community hafa staðfest þátttöku sína í IA ráðstefnunni sem fer fram samhliða Iceland Airwaves hátíðinni dagana 5. og 6. Nóvember í Sjálfstæðissalnum (fyrrum Nasa).

Ráðstefnan, sem er haldin af Iceland Airwaves, Tónlistarmiðstöð, Íslandsstofa og Tónlistarborgin Reykjavík, hefur fest sig í sessi sem mikilvægasta tónlistarráðstefna Íslands og leggur skipulagsteymið áherslu á að dagskráin sé sem fjölbreyttust og framsæknust. Ráðstefnan er því ómissandi fyrir íslenskt sem alþjóðlegt fagfólk í tónlist bæði sem fræðslu-, stefnumótunar- og skemmtiviðburður. 

‍

Miðar fást hér>>

Hér fyrir neðan gefur að líta dagskráliðina og þátttakendurna sem voru tilkynntir í dag, en fleiri viðburðir og þátttakendur verða kynntir á næstu vikum og mánuðum. Við mælum með því að áhugasöm skrái sig á póstlista Tónlistarmiðstöðvar til að fá frekari upplýsingar beint í pósthólfið.

Bandsplain: The Sugarcubes

‍

‍

Tónlistarhlaðvarpið Bandsplain, í stjórn Yasi Salek, kafar djúpt í sögu og útgáfur listafólks sem þrífst oftar en ekki á jaðrinum og leitast við að útskýra af hverju fólk fellur fyrir þeim. Á IA ráðstefnunni verða Sykurmolarnir teknir fyrir og áhrif þeirra á íslenska tónlistarmenningu grandskoðuð. Viðmælandi Yasi verður breska blaðakonan og rithöfundurinn Miranda Sawyer en hún skrifaði til að mynda bókina Uncommon People: Britpop and Beyond in 20 Songs og heldur einnig úti úti hlaðvarpinu Talk ‘90s to me. 

‍

Bedroom Community at 20

‍

‍

Goðsagnakennda útgáfukollektívan Bedroom Community heldur upp á 20 ára afmæli í ár og til að fagna áfanganum höfum við boðið Valgeiri Sigurðssyni, tónskáldi, upptökustjóra og stofnanda Bedroom Community, í sófaspjall á ráðstefnunni. Bedroom Community þarf vart að kynna fyrir lesendum, en útgáfan varð strax við stofnun brautryðjandi afl í samsuðu sígildrar tónlistar og 21. aldar tækninnar og hefur allar götur síðan haldið áfram að ögra og gleðja hlustendur með óvæntum útgáfum sem fylgja þó skýrri listrænni sýn. Í sófaspjallinu mun Valgeir ræða hvernig þessi listræna sýn hefur vaxið, dafnað og þróast síðastliðin 20 ár, frá húsakynnum þeirra í Breiðholtinu til stórtónleika í Barbican, Walt Disney tónleikahöllinni og víðar, og hvað framtíðin ber í skauti sér.

‍

IA ráðstefnan tilkynnir 8 mælendur til viðbótar

‍

Auk Bandsplain og Bedroom Community hafa 8 fagaðilar til viðbótar staðfest þátttöku sína á ráðstefnunni í haust: 

‍

"Showcase Festivals: Why Do We Do This to Ourselves?"

‍

‍

Caitlin-Finn Ballard  hefur starfað sem bókari hjá ROAM í Lundúnum síðastliðin 6 ár. Bakgrunnur hennar spannar hljóðtækni, tónlistarblaðamennsku margvísleg önnur störf á fremstu víglínu tónlistariðnaðarins.

Harley Cassidy er tónleikahaldari hjá AEG í Lundúnum og rekur klúbbakvöldið Plastic Factory, þar sem meginmarkmiðið er að styðja við listafólk á fyrstu skrefum ferilsins. Áður starfaði hún við A&R hjá ýmsum útgáfufyrirtækjum, þar á meðal Columbia Records, ásamt því að vera bókari hjá grasrótartónleikastöðum.

Yuka Sato er dagskrár- og samstarfsstjóri CUEW, alþjóðlegrar bransahátíðar og ráðstefnu sem tengir japanskt listafólk við alþjóðlegan tónlistariðnað. Hún stýrir alþjóðlegu samstarfi og dagskrárgerð ráðstefnunnar, og vinnur að því að skapa tækifæri til menningarsamstarfs á milli Asíu og Evrópu

‍

 "Anybody in There? Human Curation in the age of the algorithm"

Paul Bridgewater er ritstjóri breska tónlistarmiðilsins The Line of Best Fit. Miðillinn, sem fagnar 20 ára afmæli sínu í ár, beint sjónum sínum að nýrri og áhugaverðri tónlist hvaðanæva úr heiminum. 

Josie Anne Gaitens er verkefnastjóri á sviði menningarmála sem sérhæfir sig í uppbyggilegri og skapandi þróun innan tónlistariðnaðarins. Hún gekk til liðs við East of Moon árið 2024, þar sem starf hennar spannar skrif, kennslu, framleiðslu og hönnun. Hún er einnig í stjórn Vökufélagsins, sem vinnur að því að byggja upp lifandi þjóðlagasamfélag á Íslandi.

‍

"From Local to Global: Against the Odds" 

Edmond Lenarth er dagskrár- og bókunarstjóri Electric Castle í Rúmení. Hann býr yfir meira en tíu ára reynslu úr tónlistargeiranum og ber ábyrgð á að bóka dagskrá hátíðarinnar, þar sem megináherslan er á að uppgötva nýtt hæfileikafólk og kynna fyrir tónlistarsenum Rúmeníu og Mið- og Austur-Evrópu.

"Live and Kicking: What’s Next for the Live Sector"

Jess Kinn, meðeigandi alþjóðlegu bókunarskrifstofunnar ROAM. Hún er með fjölbreyttan hóp listafólks á sínum vegum, þar á meðal Olly Alexander (Years & Years), Africa Express, Pale Waves, Moonchild Sanelly, Say She She, Esmeralda Road og The Aces.

‍

‍

"Flights, Freight & Festivals: It’s Not Easy Being Green" 

‍

‍

Alexandra Kjeld, umhverfisverkfræðingur og ráðgjafi hjá EFLA verkfræðistofu, sem sérhæfir sig í vistferilsgreiningum og kolefnisspori. Alexandra er með BA-gráðu í tónlistarfræði og hefur yfir tveggja áratuga reynslu af lifandi tónlist, útgáfu, samfélagsuppbyggingu og framkvæmd viðburða og hátíða, auk þess sem hún starfar nú við VÖKU þjóðlistahátíð.

‍

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar