
Hátíðir sameina fólk, bæði í bókstaflegum skilningi sem og andlegum. Þær skapa rými til að njóta samveru, miðla sögum og hugmyndum og fagna fjölbreytileikanum. En þeim fylgja líka umhverfisáhrif, þar sem ferðalög gesta og listafólk vega þyngst. Togstreitan milli þess að safna fólki saman og vernda umhverfið hefur getið af sér sífellt fleiri verkefni sem miða að því að draga úr umhverfisáhrifum hátíða.
Eitt þessara verkefna eru evrópsku hátiðasamtökin European Festivals Forest en þau vinna með Landi og skógi að skógrækt á Íslandi. Hvert 2 evru framlag frá hátíðum eða gestum þeirra verður að einu gróðursettu tré, og fyrir stuttu náðust þau mikilvægu tímamót að tré númer 30.000 var gróðursett að Tumastöðum.
Til að fagna þessum áfanga bjóða Tónlistarmiðstöð, Land og skógur og European Festivals Forest aðstandendum íslenskra tónlistarhátíða, og öðrum áhugasömum, til gróðursetningardags fimmtudaginn 17. september.
Dagskrá