
Nú eru sléttar tvær vikur í að Iceland Airwaves-ráðstefnan hefjist og því ekki seinna vænna en að segja frá síðasta viðburðinum sem bætist við dagskrána. Heard, but Understood? – Small Languages on Global Platforms opnar ráðstefnuna kl. 9:30 fimmtudaginn 5. nóvember.
Í pallborðinu, sem skipulagt er í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, er velt upp stöðu örmarkaða og smárra tungumála gagnvart alþjóðlegum streymisveitum. Frekar en að nálgast málið út frá sjónarhóli menningarvarðveislu höldum við því fram að ósýnileiki smárra tungumála í algóritmum streymisveita feli í sér vannýtt tækifæri. Hvernig geta veiturnar, löggjafinn og tónlistarbransinn nýtt sér það betur, og hver ætti að taka af skarið?
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina hjá ráðuneytinu, Emma Vikström, yfirmaður norrænnar ritstjórnar Spotify, Sölvi Blöndal, framkvæmdastjóri Öldu Music, og Þórhallur Jónsson, framkvæmdastjóri dönsku útgáfunnar Crunchy Frog, munu kljást við umræðuefnið. Umræðum stjórnar Christiana Sudano, stofnandi Do Less Management.
Fleiri þátttakendur bætast í hópinn
Ahmed Saqer, framkvæmdastjóri palestínsku tónlistarútflutningsskrifstofunnar PMX hefur tilkynnt þátttöku sína í Stóra samtalinu. Þar mun hann, ásamt Jóni Gnarr og Yuliu Vasilevu, ræða menningarlegan ávinning áfangastaða þeirra sem neyðast til að flýja land sitt og þjóð vegna stríðs eða annarrar ógnar.
Lewis Warrily, umboðsmaður filippseysk-íslensku stjörnunnar Yaelokre, og Tori West, ritstjóri og stofnandi menningarritsins BRICKS, hafa staðfest þátttöku sína í pallborðinu Anybody in There? Human Curation in the Age of the Algorithm.
Henrik Posner, bókari norsku faghátíðarinnar by:Larm, bætist á mælendaskrá í pallborðinu Discovery at Heart: Festival Programming with Purpose, og George Clift, útgáfustjóri Bedroom Community, lokar dagskrá fimmtudagsins með sófaspjalli með kollega sínum Valgeiri Sigurðssyni og Emily Bick, ritstjóra The Wire, þar sem 20 ára saga útgáfunnar verður grandskoðuð.
Síðastur til að bætast í þennan stjörnum prýdda hóp mælenda er svo Ryan Rathjen, stofnandi og bókari Purple City Music Festival, en hann tekur þátt í pallborðinu Flights, Freight & Festivals: It’s Not Easy Being Green.
Ráðstefnan, sem haldin er af Iceland Airwaves, Tónlistarmiðstöð, Íslandsstofu og Tónlistarborginni Reykjavík, hefur fest sig í sessi sem mikilvægasta tónlistarráðstefna Íslands og leggur skipulagsteymið áherslu á að dagskráin sé sem fjölbreyttust og framsæknust. Ráðstefnan er því ómissandi fyrir íslenskt sem alþjóðlegt fagfólk í tónlist, sem fræðslu-, stefnumótunar- og skemmtiviðburður.

