.jpg)
Tónlistarmiðstöð er þessa dagana stödd á Jazzahead í Bremen, þar sem stór sendinefnd kynnir litróf íslensku jazzsenunnar á þessum virta vettvangi. Með í för er tríóið Hist og, sem kemur fram á tónleikunum Nordic Clubnight á Kulturzentrum Lagerhaus um helgina. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Tónlistarmiðstöðvar og systurstofnana okkar á Norðurlöndunum - Music Finland, Music Norway og Faroe Music Export - en auk okkar fólks stíga þar á svið Harri Kuusijärvi (FI), Jákup Torgarð (FO) og Phønix (NO).
Í tilefni af tónleikunum fengum við Hist og til að taka við stjórninni á Iceland Music Jazz lagalista miðstöðvarinnar. Úr varð þessi stórskemmtilegi listi sem gefur góða mynd af þeim heimi sem tríóið hrærist í. Frá árinu 2017 hafa meðlimir hljómsveitarinnar, þau Róberta Andersen, Magnús Tryggvason Elíasen og Eiríkur Orri Ólafsson, sett mark sitt á íslensku senuna með neonlitaðri spunalist sem býr einhversstaðar á flekaskilum djass- og raftónlistar og endurspeglar lagalistinn þennan heim. Á lagalistanum mætast helstu turnar senunnar og náið samstarfsfólk hljómsveitarinnar sem kannar svipuð landsvæði og tríóið sjálft.