
Þessa dagana fer Reeperbahn hátíðin fram í Hamborg og Tónlistarmiðstöð tekur auðvitað þátt í látunum. Að þessu sinni eru það Amor Vincit Omnia, Elín Hall og Spacestation sem fara fyrir Íslands hönd á þessa stærstu klúbba- og faghátíð Evrópu. Á ári hverju umbreytir hátíðin goðsagnakenndu St. Pauli hverfi Hamborgar í einn af mikilvægustu vettvöngum álfunnar fyrir alþjóðlegan tónlistariðnað. Hátíðin spilar ekki síst mikilvægt hlutverk fyrir ungt og upprennandi listafólk, en listinn af tónlistarfólki sem hefur vakið alþjóðlega athygli í kjölfar framkomu á Reeperbahn er endalaus. Við óskum þeim því góðs gengis, og fyrst og fremst góðrar skemmtunar!
Amor Vincit Omnia // Fimmtudaginn 17. sept // 18.00 // Hamburg Haus
Elín Hall // Föstudaginn 18. sept // 21.50 // St. Pauli Kirche
Spacestation // Laugardaginn 19. sept // 19.00 // Indra


