Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin HARPA 2027 kalla eftir innsendingum

10 August 2026

Norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunin HARPA hafa opnað fyrir innsendingar fyrir árið 2027. Um er að ræða árlega viðurkenningu sem veitt er á Nordic Film Music Days í Berlín í febrúar. Þar er eitt verk frá hverju Norðurlandi tilnefnd og verður verðlaunahafinn tilkynntur við hátíðlega athöfn í Norræna sendiráðinu í Berlín (Nordische Botschaften) laugardaginn 13. febrúar.

Tilnefnd tónskáld fá boð á Nordic Film Music Days í Berlín, þar sem þeim býðst tækifæri til að kynna verkefni sín, sýna myndirnar og styrkja tengsl sín við alþjóðlega kvikmyndatónlistargeirann. 

Íslensk tónskáld hafa fimm sinnum tekið á móti Hörpunni en síðast var það Eðvarð Egilsson árið 2024.

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Tónlistin verður að vera samin fyrir kvikmynd, heimildarmynd eða sjónvarpsseríu (að lágmarki 50 mínútur að lengd).
  • Verkið verður að hafa verið frumsýnt á tímabilinu 21. júlí 2025 til 21. júlí 2026 (miðað er við opinbera útgáfudagsetningu á IMDb).

Hér er tekið á móti innsendingum

Innsendingarfrestur er til og með 1. september.

Nánari upplýsingar má finna á vef Nordic Film Music Days.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar