
Annar þáttur af nýrri seríu hlaðvarpsins Northern Rising er kominn í loftið! Í þetta sinn er það akureyrski fjöllistamaðurinn Egill Jónasson, eða Drengurinn Fengurinn, sem situr fyrir svörum.
Egill er að öllum líkindum afkastamesti listamaður Íslands. Drengurinn Fengurinn gaf til að mynda út einhverjar 30 plötur árið 2023 en hefur eitthvað hægt á sér undanfarin árin. Árið 2025 gaf hann „aðeins" út tvær plötur. Hann er stoð og stytta í menningarlífinu á Akureyri og var til að mynda valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 2025 og sama ár sinnti hann hlutverki verndara hátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím.
Það er ekki auðvelt að lýsa tónlist Drengsins. Hún er kaótísk og illskilgreinanleg, en anarkísk DIY nálgun og naívismi renna sem rauður þráður í gegnum flesta sköpun hans.
Sama mætti segja um þáttinn sjálfan. Egill drekkir þáttastjórnandanum í kaffi, dregur hann í heimsókn til systur sinnar og svo í strætó upp í Kringlu, sem Egill kallar „griðastað frá amstri lífsins”.
Stjórnandi þáttarins er Tim Pogo, sem hefur verið tíður gestur á Airwaves frá árinu 2000 og er reyndur bandarískur fjölmiðlamaður með langa sögu úr útvarpi, sjónvarpi og stafrænni miðlun.
Northern Rising er framleitt af Tónlistarmiðstöð, Record in Iceland og The Reykjavík Grapevine.
Hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum, þar á meðal hér:

