
Kvikmyndatónskáld, og aðrir sem semja tónlist fyrir myndmiðla, geta sótt um að fá pláss á hraðfundum með framleiðendum og leikstjórum á Nordic Film Music Days í Berlín
Hraðfundirnir fara fram þann 13. Febrúar, 2027 og býðst þátttakendum einnig að taka þátt í allri dagskrá Nordic Film Music Days sér að kostnaðarlausu, en þurfa sjálf að greiða ferðakostnað. Dagskrá hátíðarinnar verður birt innan skamms en hægt er að skoða dagskrá síðustu hátíðar hér, Hátiðin fer fram dagana 11.-13. febrúar.
Við hvetjum öll kvikmyndatónskáld sem vilja kynna sig á norrænum og alþjóðlegum vettvangi að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember, takmörkuð pláss eru í boði.
Frekari upplýsingar veitir Signý Leifsdóttir: signy@icelandmusic.is

