RAKEL og MacKenzie Leighton taka þátt í tónlistarskiptivinnudvöl á milli Nantes og Reykjavíkur

08 June 2026

Tónlistarkonurnar RAKEL og MacKenzie Leighton hafa verið valdar til þátttöku í tónlistarskiptivinnudvöl á milli borganna Nantes í Frakklandi og Reykjavíkur.

Markmið skiptivinnudvalarinnar er að tengja saman borgirnar tvær og tónlistarsamfélög þeirra, auk þess að stuðla að sjálfbæru samstarfi með því að nýta kraft tónlistar og sköpunar. 
Vinnudvölin býður tónlistarfólki tækifæri til að skapa tónlist í fullbúnu hljóðveri og æfingarými í borgunum tveimur. Dvölin er jafnframt einstakt tækifæri fyrir listafólkið að tengjast tónlistarsenunni í viðkomandi landi jafnt öðru listafólki sem og aðilum úr tónlistariðnaðinum.  

Skiptivinnudvölin er samstarfsverkefni Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Nantes, Tónlistarmiðstöðvar, hafnar.haus, STEF og Listasamsteypunnar Trempo í Nantes, Franska sendiráðið á Íslandi,  Allliance Francaise de Reykjavik og ARDIAN.

Um listafólkið

MacKenzie Leighton hefur verið búsett og starfandi í Nantes síðan 2017. Tónlist hennar er poppskotin þjóðlagatónlist og hefur hún á síðasta áratug skipað sér sess sem mikilvæg rödd innan tónlistarsenunnar borgarinnar. Leighton hefur unnið með fjölmörgu tónlistarfólki og upptökustjórum og komið víða fram í Frakklandi, Belgíu og Bandaríkjunum. 

Reykvíska valnefndin, skipuð fulltrúum frá Tónlistarborginni, hafnar.haus, Tónlistarmiðstöð, STEF og Franska sendiráðinu, var sammála um að Leighton væri góður fengur fyrir tónlistarlíf borgarinnar. Frásagnarform og tónlist Leighton er áhrifamikil og djúp, en nefndin er sannfærð um að hún muni auðveldlega tengjast og eiga í skapandi samstarfi við tónlistarsamfélagið í Hafnarhaus og á Iceland Airwaves.

Við hlökkum til að taka á móti henni í Reykjavík í október!

Meira um Leighton og hlekkur á tónlist : https://mackenzieleighton.com/ 


Trempo valdi RAKEL sem fulltrúa Reykjavíkur í Nantes. Tónlistarkonan vinnur með söng, minningar og andrúmsloft sem efnivið í sköpun sinni. Í tónlist hennar fléttast saman rödd, vettvangsupptökur og fíngerðir hljóðheimar í verk sem eru bæði innileg og víðfeðm að upplifun.
Frumraun hennar í plötuformi, a place to be (2025, OPIA Community), markaði tímamót á ferli hennar. Platan hlaut afar góðar viðtökur gagnrýnenda og var tilnefnd til fjölda verðlauna. Fyrr á árinu hlaut RAKEL Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins, en einnig var a place to be tilnefnd sem plata ársins og lag af henni, always, tilnefnt sem lag ársins.

RAKEL var valin til þátttöku í vinnudvölinni af TREMPO úr hópi fjölmargra umsækjenda. Við óskum henni innilega til hamingju með þetta tækifæri – framtíðin er björt og við hlökkum til að fylgjast með vegferð hennar á komandi árum.

Meira um RAKEL og hlekkur á tónlist: https://linktr.ee/rakelisrakel 

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar