
State of the Art, ein grallaralegasta tónlistarhátíð landsins, fer fram í þriðja sinn dagana 6.–11. október víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Hátíðin einsetur sér að hrista upp í hefðbundnu tónleikaformi og setja listafólk og áhorfendur í óvænt samhengi.
Að hátíðinni standa Bjarni Frímann Bjarnason, Bergur Þórisson og Magnús Jóhann Ragnarsson – allir meðal fremstu tónlistarmanna landsins – ásamt Sverri Páli Sverrissyni, reyndum viðburðahaldara og verkefnastjóra sem hefur komið að sumum af frumlegustu uppákomum sem sést hafa hér á landi. Saman skapa þeir vettvang þar sem hugmyndaauðgi og tilraunagleði fá að leika lausum hala.
Er hinn síungi Skúli Sverrisson orðinn sextugur? Hvað gerist þegar kórinn Kliður og blásarakvartettinn Tu Ha? Tu Bjö! sameina krafta sína? Er hægt að dansa fótboltaleik á Ölveri? Hversu mikinn Bach og bassa er hægt að setja í Austurbæjarbíó? Og hvað hafa átta borvélar og tvær steypuhrærivélar fram að færa í kammersveit? Svör við öllum þessum spurningum fást á hátíðinni.
Hátíðarpassar og stakir miðar fást á tix.is og dagskrána í heild má finna á stateoftheartfestival.is.
Meðal hápunkta hátíðarinnar eru tónleikar norsku sveitarinnar BIT20 í Salnum og endurkoma Barokks á klúbbnum í Austurbæjarbíói.

Salurinn – 11. október kl. 17.00
BIT20 er sennilega óþekkasta barnið í norrænni samtímatónlist. Hún var stofnuð í Bergen árið 1989 til að þyrla upp stemningu fyrir nýrri tónlist og hefur síðan pantað og frumflutt ótal verk eftir bæði heimsþekkt og óþekkt tónskáld. Bjarni Frímann, sem er fæddur sama ár og sveitin, var nýlega skipaður listrænn stjórnandi hennar. Síðan hann tók við hefur BIT20 fyllt hvert húsið á fætur öðru og fengið fullt hús hjá gagnrýnendum.
Á efnisskránni er norræn samtímatónlist í öllum regnbogans litum: pönk-frumflutningur, íslenskur útúrdúr, okkar eigin Atli Heimir og verk sem sveitin pantaði sjálf og hefur gert ódauðlegt.

Austurbæjarbíó – 10. október kl. 21.00
Þá snýr Barokk á klúbbnum aftur, stærra en nokkru sinni fyrr. Viðburðurinn hefur verið einn sá vinsælasti frá upphafi hátíðarinnar og síðast komust færri að en vildu. Í ár færist hann af næturklúbbnum AUTO yfir í Austurbæjarbíó, með fleiri ljósum, þyngri bassa, stærri hljómsveit og meiri Bach. Strengir og semball deila sviðinu með athafnarstjóra trommuheila og rafhljóða sem leiðir Vivaldi og Bach inn á slóðir 21. aldarinnar.

