
Jón Gnarr, fyrrum borgarstjóri, og Yulia Vasileva, forsprakki hávaðalistasamsteypunnar MC MYASNOI, hafa staðfest þátttöku sína í IA ráðstefnunni. Þau munu taka þátt í viðburði sem ber yfirskriftina Stóra samtalið og snýr að menningarlegum ávinningi áfangastaða þeirra sem neyðast til að flýja land sitt og þjóð vegna stríðs eða annarrar ógnar. Umræðum stjórnar hönnuðurinn, fræði- og tónlistarmaðurinn R. Michael Hendrix.

Margar af helstu menningarstofnunum Íslands eiga rætur að rekja til flóttafólks sem kom hingað til lands á 20. öldinni. Stóra samtalið varpar ljósi á þessu mögnuðu sögu og ræðir hvernig menninarsamfélagið getur stuðlað að áframhaldandi stuðningi við flóttafólk og þar af leiðandi litríkara menningarstarfi í landinu.
Ráðstefnan, sem er haldin af Iceland Airwaves, Tónlistarmiðstöð, Íslandsstofu og Tónlistarborginni Reykjavík, hefur fest sig í sessi sem mikilvægasta tónlistarráðstefna Íslands og leggur skipulagsteymið áherslu á að dagskráin sé sem fjölbreyttust og framsæknust. Ráðstefnan er því ómissandi fyrir íslenskt sem alþjóðlegt fagfólk í tónlist bæði sem fræðslu-, stefnumótunar- og skemmtiviðburður.
Ásamt Stóra samtalinu bættust 5 aðrir fagaðilar á mælendaskrá í tilkynningu dagsins. Þau eru:

Emily Bick, ritstjóri hins virta tónlistarblaðs The Wire, stjórnar sófaspjalli við Bedroom Community, sem er haldið í tilefni 20 ára afmælis útgáfunnar.
Sophie Williams, blaðamaður hjá Billboard UK, stjórnar umræðum í pallborði sem ber yfirskriftina Showcase Festivals: Why Do We Do This to Ourselves.

Katrine Friis Sønderby, alþjóðlegur bókari og umsjónamaður tónlistarsamstarfs hjá Spot Festival og Rodrigue Mercier, tónlistarkúrator Mama Festival í París bætast í hóp bókara sem taka þátt í pallborðinu Discovery at Heart: Festival Programming with Purpose.
Síðast en alls ekki síst bætist Sindri Ástmarsson, bókari Iceland Airwaves hátíðarinnar, við pallborðið From Local to Global: Against the Odds.
Enn á eftir að tilkynna fleiri viðburði og þátttakendur og við mælum því eindregið með því að áhugasöm skrái sig á póstlista Tónlistarmiðstöðvar til að fá frekari upplýsingar beint í pósthólfið.

