Tækifæri framundan - Tíbrá, Big Bang, WOMEX og fleira

02 February 2026

Enn rignir inn áhugaverðum tækifærum fyrir tónlistarfólk hvort sem það er til að kynna, skapa eða tengjast. Hér má finna helstu umsóknarfresti sem hafa lent í innhólfi Tónlistarmiðstöðvar síðastliðnar vikur.

Við mælum með að öll áhugasöm um slík tækifæri skrái sig á póstlista Tónlistarmiðstöðvar.

Ísland

Tíbrá í Salnum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2026 – 2027.

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.

Umsóknarfrestur er til 15. Febrúar

Sækið um hér

Big Bang Festival

Big Bang Festival er ævintýraleg evrópsk tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist og frítt á alla viðburði. Tónlistarhátíðin leitar nú að skemmtilegum og skapandi tónlistarviðburðum sem ætlaðir er ungum áheyrendum og fá valin atriði þóknun og tækifæri til að vinna undir leiðsögn leikstjóra. BIG BANG fer fram á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2026 í Gerðubergi í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar og umsóknir berist fyrir 15. febrúar á netfangið info@listfyriralla.is


Nordic Music Camp

STEF auglýsir eftir lagahöfundum og pródúsentum í lagasmíðabúðirnar Nordic Music Camp, sem verða haldnar í Sisimiut á Grænlandi dagana 27. mars til 4. Apríl.
Það eru samtökin Nordic Music Community sem standa fyrir framtakinu, sem rúllað hefur á milli Norðurlandanna undanfarin ár og voru síðast haldnar í Færeyjum þar sem fulltrúi STEFs var Bríet. STEF fær pláss í búðunum fyrir einn þátttakanda og mun standa straum af kostnaði.

Umsóknarfrestur er til 6. Febrúar. 

Sækið um hér


Smellasmíði

Mánudaginn 16. febrúar mun STEF einnig standa fyrir námskeiði í popplagasmíðum undir heitinu „Smellasmíði“

Leiðbeinendur verða Birgir Steinn Stefánsson og Bjarki Ómarsson (Bómarz), en þeir stóðu fyrir samskonar námskeiði í fyrra, þar sem færri komust að en vildu. Báðir hafa náð góðum árangri á undanförnum árum, Birgir sem söngvari og lagasmiður fyrir sig og aðra og Bjarki sem höfundur og útsetjari fyrir ýmsa.

Farið verður yfir helstu þætti við sköpun popplaga, auk þess sem þátttakendur fá handleiðslu í að þróa áfram hugmyndir. Fer þetta fram í húsakynnum STEFs að Laufásvegi 40 á milli kl. 17 og 20.

Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og ef aðsókn verður umfram það sem viðráðanlegt getur talist, þá áskilja skipuleggjendur sér rétt til að velja úr umsóknum. Skráningar- og þátttökugjald er hóflegt, eða 3.000 kr.

Öllum er velkomið að taka þátt, en ungir og efnilegir höfundar hafa forgang.

Skráning fer fram hér:

Faghátíðir

Womex

WOMEX auglýsir eftir umsóknum frá listafólki, plötusnúðum, kvikmyndafólki og fagaðilum. Hægt er að sækja um í fjórum flokkum: Showcase, Club Summit, Film og Conference. 

Hátíðin, sem verður haldin í Gran Canaria dagana 21.-25. október, er án efa ein alþjóðlegasta tónlistarhátíð í heimi og mikilvægasta ráðstefna heimsstónlistarsenunnar. Þar mætast þjóðlagatónlist, raftónlist frá öllum heimshornum, djass og klassísk tónlist ásamt öllum mögulegum samsetningum af þessum stefnum. 

Tónlistarmiðstöð hefur verið með bás á hátíðinni undanfarin ár sem hefur nýst sem bækistöð íslensks listafólks og fagaðila sem sækja hana. Því er um að gera að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi umsóknarferlið. 

Umsóknarfrestur er til 26. febrúar.

Sækið um hér

MMVV

Katalónska faghátíðin Mercat de Música Viva de Vic (MMVV) auglýsir eftir listafólki sem vill koma fram á hátíðinni sem fer fram í borginni Vic, dagana 16.-20. september. Hátíðin er á sínu 38. starfsári og býður hún upp á metnaðarfulla tónlistarráðstefnu samhliða tónleikadagskrá út um alla borg. 

Umsóknarfrestur er til 31. Mars.

Sækið um hér

Verðlaun

Bucharest International JAZZ Competition

Bucharest International JAZZ Competition hefur opnað fyrir skráningu. Hátíðin er meðal stærstu jazzkeppna í Evrópu og er hún haldin samhliða EUROPAfest í Búkarest, Rúmeníu, dagana 3.-11. júlí. 

Keppnin leitar af sólólistafólki og hljómsveitum (allt að 6 meðlimum) undir 45 ára aldri. Skráningargjald er 140 evrur en hátíðin útvegar allan búnað og hljóðmenn. 

Umsóknarfrestur er til 1. Mars

Sækið um hér

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar