
Ferðastyrkir eru veittir tónlistarfólk og fagaðilum sem hyggjast sækja sér tækifæri á alþjóðlegum mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.
Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og rann síðasti umsóknarfrestur út þann 1. júní. Í heildina sóttu 39 verkefni um og ákvað úthlutunarnefnd að veita 10 verkefnum alls 3.225.000 kr.
Næsti umsóknarfrestur er 1. ágúst 2026.
Verkefni sem hlutu ferðastyrk í júní úthlutun: