.jpg)
🗓️ 3. júní
⏰ 17.00-19.00
💻 Fjarfundur
Mexíkó er einn sá tónlistarmarkaður í heiminum sem vex hvað örast í dag og tækifæri fyrir norræna tónlist fara sífellt vaxandi þar í landi. Á liðnum haustmánuðum stóð Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við útflutningsskrifstofur Færeyja og Noregs, fyrir yfirgripsmiklum leiðangri til Mexíkó. Einn listamaður var valinn frá hverju landi og komu þau fram á þrennum hljómleikum á hinum goðsagnakennda tónleikastað Foro Indie Rocks í Mexíkóborg. Höfuðáhersla var lögð á að tengja hópinn við helstu fagaðila á svæðinu til að leggja grunninn að langtímasamböndum
Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir hvernig byggja megi upp tengslanet, skipuleggja tónleikahald og stýra stefnumótun í rómönsku-Ameríku. Samstarfsaðilar og þátttakendur úr Mexíkóverkefninu deila reynslu sinni, dæmum úr raunveruleikanum og þeim helstu lærdómum sem bransafólk þarf að hafa í huga.