
Í tilefni Jazzhátíðar Reykjavíkur býður Tónlistarmiðstöð tónlistarfólki og öðrum aðstandendum hátíðarinnar á Reykjavik Jazz Nonference, sem íslenskast etv. sem óráðsstefna, með sérstökum gestum hátíðarinnar í ár. Viðburðurinn fer fram í húsnæði Tónlistarmiðstöðvar föstudaginn 28. Ágúst á milli 14.15-17.15.
Dagskrá:
14.15-15.00 - Charlie Vetter, hátíðarstjóri frönsku jazzhátíðarinnar Cosmojazz, gefur okkur innsýn inn í blómlega jazzhátíðarsenu Frakklands og helstu sóknarfæri íslensks listafólks þar í landi.
15.15 - 16.15 - Hringborðsumræður við Walter Venafro, útvarpsmann hjá Jazz FM og Angela Heck, framkvæmdastjóra Jazz Winnipeg um kanadíska jazzmarkaðinn.
16:30 - 17:15 - Samtal við Arne Schumacher, blaðamann hjá þýska tímaritinu Jazzthetik, um íslenskan jazz í Þýskalandi.
Dagskráin býður upp á einstakt tækifæri fyrir listafólk í ferðahug, bæði til að fræðast um helstu tækifæri á mikilvægustu mörkuðum íslensks listafólks, sem og til að tengjast lykilaðilum í alþjóðlega jazzbransanum. Við hvetjum því þátttakendur á hátíðinni í ár, sem og annað spunalistafólk, til að fjölmenna.
Við hlökkum til að sjá þig.