
Tónlistarmiðstöð býður umsækjendum í Tónlistarsjóð að hittast í kaffi í sal miðstöðvarinnar mánudaginn 19. október kl. 15–18. Þar gefst tækifæri til að vinna að umsóknum í góðum félagsskap, skiptast á hugmyndum og spjalla um umsóknarferlið. Viðburðurinn er hugsaður sem opið og hvetjandi vinnurými fyrir þau sem eru að undirbúa umsókn.
Næsti umsóknarfrestur í Tónlistarsjóð er 30. október, kl. 15.00