
Aðalfundur Tónlistarmiðstöðvar verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2026 kl. 16:00 í húsakynnum Tónlistarmiðstöðvar að Austurstræti 5, 101 Reykjavík.
Samkvæmt 4. gr. tónlistarlaga nr 33/2023 eiga rétt til setu aðalfundar Tónlistarmiðstöðvar stofnaðilar, þeir sem skipa fulltrúa í stjórn Tónlistarmiðstöðvar og fulltrúar í Tónlistarráði. Stjórn er heimilt að bjóða fleirum til áheyrnar á aðalfundi.
Aðalfundur Tónlistarmiðstöðvar er opinn öllum áhugasömum en skráning er nauðsynleg. Tekið er á móti skráningum til kl. 08:00 á fundardegi.
1. Setning aðalfundar. Formaður stjórnar Tónlistarmiðstöðvar setur aðalfundinn.
2. Kjör á fundarstjóra og fundarritara.
3. Fundarstjóri tekur við stjórn og kannar lögmæti fundarins.
4. Skýrsla stjórnar um starfsemi Tónlistarmiðstöðvar á liðnu starfsári.
5. Starfs- og rekstraráætlun Tónlistarmiðstöðvar 2025.
6. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi og hann lagður fram til samþykktar.
7. Skipun löggilts endurskoðanda.
8. Skipun stjórnar.
9. Ákvörðun um greiðslu stjórnarlauna næsta starfsár.
10. Önnur mál löglega upp borin.