
Photo: Emma Summerton
Laufey Lín vann í nótt Grammy verðlaun í flokki hefðbundinna poppplatna fyrir plötuna A Matter of Time.
Þetta eru önnur Grammy verðlaunin sem Laufey vinnur, en hún fékk sömu verðlaun fyrir tveimur árum fyrir plötuna Bewitched.
Í þakkarræðu sinni notaði listakonan tækifærið og þakkaði tónlistarkennurum og listmenntun sinni sérstaklega fyrir og lagði áherslu á mikilvægi þess að styðja við listir og tónlistarnám.
Við óskum Laufey innilega til hamingju með verðlaunin!
.jpg)
.jpg)
.jpg)