.png)
Showcase-hátíðin Tallinn Music Week fer fram 3.- 5. apríl 2025 en umsóknarfrestur til að spila á hátíðinni er til 4. nóvember næstkomandi.
Tallinn Music Week
Tallinn Music Week (TMW) er ein vinsælasta tónlistar- og borgarmenningarhátíðin í Evrópu og er að verða lykilviðburður fyrir fagfólk í tónlist og menningariðnaðinum. Hátíðin hefur verið haldin árlega í höfuðborg Eistlands, Tallinn síðan 2009 en hún samanstendur af þremur aðaldagskrárþáttum: showcase-hátíð, ráðstefnu og borgarhátíð.
TMW býður gestum upp á fjölþættar tónlistarstefnur frá allri Evrópu og víðar á bestu tónleikastöðum Tallinn. Tónlistarprógramm TMW er þekkt fyrir djarfa blöndu af einstökum hæfileikum, frá því tilraunakennda yfir í klassíkina.
Showcase-hátíðir
Showcase-hátíðir (e. faghátíðir) eru frábrugðnar hefðbundnum tónlistarhátíðum þar sem stór hluti tónleikagesta er fagfólk úr tónlistarbransanum og þær geta verið stökkpallur á alþjóðlegan tónlistarmarkað þegar vel er að staðið. Slíkar hátíðir eru mikilvægur liður í útflutningi á íslenskri tónlist.
Ef ætlunin er að koma tónlistarverkefni á framfæri á showcase-hátíð er mikilvægt að kynna sér vel stefnu hverrar hátíðar og setja sér skýr markmið með þátttöku, einnig er nauðsynlegt að tónlistarverkefnið sé tilbúið til útflutnings (e. export ready)
.jpg)
.jpg)