Ragga Gröndal á Nordic Folk Alliance 2026

18 February 2026

Ástsæla söngkonan Ragga Gröndal verður fulltrúi Íslands á þjóðlagahátíðinni Nordic Folk Alliance í Apríl. 

Ragnheiður hefur um árabil unnið markvisst með íslenskan þjóðlagaarf og fært hann í nýjan og persónulegan búning. Hún hefur gefið út tvær þjóðlagaplötur, Þjóðlög (2006) og Tregagás (2009), og því tekið virkan þátt í endurvakningu íslenskrar sönghefðar. Samhliða því hefur hún sent frá sér frumsamda tónlist undir sterkum áhrifum þjóðlagatónlistar, þar á meðal Töfrabörn (2019), sem hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Hún stefnir nú á útgáfu á nýrri þjóðlaga- og rímnaplötu og mun kynna hana, ásamt eldra efni, á Nordic Folk Alliance.Henni til halds og traust verður gítarleikarinn Guðmundur Pétursson.

‍Nordic Folk Alliance: Samkomustaður norrænna þjóðlagahefða

Nordic Folk Alliance er árleg ráðstefna og hátíð sem fagnar norrænni þjóðlagatónlist og menningu. Í ár verður hátíðin haldin í Malmö, Svíþjóð, dagana 9.-11. apríl.
Viðburðurinn samanstendur af faghátíð og tónlistarráðstefnu með fyrirlestrum, pallborðsumræðum og vinnustofum sem hvetja til nýsköpunar og samstarfs innan greinarinnar.

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar