Ferðastyrkir eru styrkir til tónlistarfólks og fagaðila sem vilja sækja sér tækifæri á stærri mörkuðum, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum sem og fagaðila vegna starfstengdra ferða, t.d. til að sækja ráðstefnur og tengslamyndunarviðburði.
Styrkirnir eru veittir á tveggja mánaða fresti og rann síðasti umsóknarfrestur út þann 1. febrúar. Í heildina sóttu 39 verkefni um og ákvað úthlutunarnefnd að veita 19 verkefnum alls 4.725.000 kr.
Næsti umsóknarfrestur er 1. apríl 2026.
Verkefni sem hlutu ferðastyrk í febrúar úthlutun:
- ADHD – Tónleikaferðalag um Kanada: 500,000
- Amor Vincit Omnia – SXSW og The New Colussus Festival: 200,000
- Björn Steinar Sólbergsson – Orgelhátíðir í Frakklandi og Sviss: 75,000
- Cantoque Ensemble – Tónleikar á Estonian Music Days: 600,000
- Cyber – Tónleikaferðalag um Evrópu: 225,000
- Eydís Evensen – Tónleikar í Englandi: 75,000
- ex.girls – Tónleikaferðalag um Noreg: 300,000
- Inspector Spacetime – Tónleikaferðalag um Danmörku: 375,000
- Jófríður Ákadóttir – Tónleikaferðalag um Evrópu: 150,000
- Mighty Bear – Tónleikaferðalag um Belgíu: 75,000
- Morpholith – Tónleikaferðalag um Pólland: 375,000
- Pétur Oddbergur Heimisson – Þátttaka á Jazzahead: 75,000
- Rakel Sigurdardottir – Upphitun á 8 tónleikum OMAM um Evrópu: 150,000
- Rakel Sigurdardottir – SXSW: 200,000
- Stefan Sand – Frumflutningur á tónverki í Osló: 75,000
- Sunna Margrét Þórisdóttir – Tónleikar í Englandi: 225,000
- Third Sound – Tónleikaferð um Ástralíu: 300,000
- Voces Thules – St. Magnus Festival á Orkneyjum: 375,000
- VÆB – Tónleikaferðalag um Evrópu: 375,000