.jpg)
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Tónlistarmiðstöðvar þann 29. apríl síðastliðinn. Fulltrúar STEFs, FÍH, FHF, TÍ og KT sitja áfram en ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála skipaði þau Óttarr Proppé, tónlistarmann og sérfræðing í heilbrigðisráðuneytinu, og Evu Hrund Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Menningarfélags Akureyrar, sem fulltrúa ráðuneytisins. Óttarr tekur við sem stjórnarformaður af Einari Bárðarsyni og Eva Hrund Einarsdóttir tekur sæti Sólrúnar Sumarliðadóttur. Þeim Einari og Sólrúnu voru þökkuð vel unnin störf og gott samstarf á þessum fyrstu og mikilvægu mótunarárum Tónlistarmiðstöðvar á sama tíma og við bjóðum Óttarr og Evu Hrund velkomin til starfa.

.jpg)
Á fundinum kynnti María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri, ársskýrslu liðins árs. Árið 2025 var annasamt og gefandi ár hjá Tónlistarmiðstöð þar sem hún stimplaði sig inn sem heimili íslenskrar tónlistar - mikilvægur árangur og heiður sem miðstöðin leggur upp úr að byggja á.
Starfið teygði sig víða, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi: