Jazzhátíð Reykjavíkur hefst í kvöld! 

25 August 2026

Í kvöld hefst Reykjavík Jazz 2026, uppskeruhátíð íslensku spunasenunnar, með tónleikum á Fantastíu í Austurstræti. Þar koma fram Tríó Sölva Kolbeinssonar, Birgir Steinn Theodorsson & Sólrún Mjöll Kjartansdóttir og Andrés Þór Tríó.

Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1990 og er því með elstu tónlistarhátíðum landsins. Hún sækir sífellt í sig veðrið og er dagskrá ársins í ár með metnaðarfyllsta móti og býður upp á yfir 30 viðburði á 14 stöðum víðsvegar um Reykjavík og á Þingvöllum!

Megnið af dagskrá hátíðarinnar fer fram í Norðurljósasal Hörpu en einnig verða tónleikar í Fríkirkjunni, Hótel Holti, Jómfrúnni, Vesturbæjarlaug, Iðnó, Austurbæjarbíó og víðar.

Dagskrá og miða má nálgast á vefsíðu hátíðarinnar

https://www.reykjavikjazz.is/

Gleðilega Jazzhátíð!

Lestu einnig
Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar